Kayaknámskeið á Stokkseyri


Nú í vor verða haldin kayaknámskeið á Stokkseyri fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Námskeiðin eru á vegum Arctic Sea Kayaks og um er að ræða tvær dagsetningar í maí (14. maí og 28. maí) milli kl. 14 og 18. Verð er 20.000 kr. og er allur búnaður innifalinn.

Hægt er að skrá sig með því að senda póst á arcticseakayaks@gmail.com. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Arctic Sea Kayaks.