Tengdir vefir

- Arabær Tamning-þjálfun-sala
- Árborg
- Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
- Draugasetrið
- Efni og greinar tengt BES
- Ella Rósinkrans - glerlist
- Fréttavefur sudurlandid.is
- Gistiheimili Suðurlands
- Gónhóll Eyrarbakka
- gtyrfingsson
- Hótel Gullfoss
- Húsið á Eyrarbakka og söfnin á suðurströndinni
- HUX Lista og tungumálamiðstöð
- Icelandicwonders.com – Álfar, Tröll og Norðurljós
- Jón Ingi Myndlistamaður
- Kaffi Sól
- Kajakaferðir Stokkseyri
- Kvöldstjarnan gistiheimili
- Listaskálinn °Sjöfn Har°
- Rauða Húsið
- South.is
- Tjaldstæði Stokkseyrar
- Töfragarðurinn Stokkseyri
- Upplýsingamiðstöð Árborgar
- Veiðisafnið Stokkseyri
- Veitingastaðurinn Við Fjöruborðið
- Þuríðarbúð á Stokkseyri
06. September 2010Auglýsingar

Vísnahornið

Höfundur: Ingibjörg Birgisdóttir

Móðir jörð

Virkjum og álverum orkuna seljum,
útum allt land tekur stóriðjan völd.
Alls ekki láglauna vinnu við veljum
svo verkamenn fáum að utan í kvöld.

Bæta skal atvinnu úti á landi,
orkan úr jökulám landsins gjör nýtt.
Svo framkvæmdir ekki á aurunum strandi,
fá álverin rafmagnið næstum því frítt.

Eftir það kraftur úr fossunum fjarar,
flennistór lón þar sem landsvæði var.
Mengun í lofti og mátturinn hjarar,
móðir jörð vanvirt, hún á varla svar.

Er það svo þannig sem þetta á að vera,
þorum við ekki að verja okkar land?
Ættlum við þegjandi ekkert að gera,
aðgerðarlaus þar til fer allt í strand?

Fólkið er hrætt við að hafa ekki gæði.
heldur að ef engin stóriðja fæst.
Fátæktin öllum í einu þá næði,
annað í stöðunni virðist harðlæst.

Þröngsýnin landinu deyðir og drekkir,
með djöfulgang rífur og tætir allt hér.
Náttúru töfrana þjóðin ei þekkir,
því aðeins peninga loforðin sér.

Ingibjörg Birgisdóttir
15. maí 2007
Til baka
Mætir þú á Færeyska fjölskyldudaga á Stokkseyri???

Nei
það getur verið


[ Eldri kannanir ]

©Stokkseyri.is Sími 864-4222. Póstfang: stokkseyri@stokkseyri.is
Heimsóknir: 20352
Í dag: 677