Tengdir vefir

- Arabær Tamning-þjálfun-sala
- Árborg
- Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
- Draugasetrið
- Efni og greinar tengt BES
- Ella Rósinkrans - glerlist
- Fréttavefur sudurlandid.is
- Gistiheimili Suðurlands
- Gónhóll Eyrarbakka
- gtyrfingsson
- Hótel Gullfoss
- Húsið á Eyrarbakka og söfnin á suðurströndinni
- HUX Lista og tungumálamiðstöð
- Icelandicwonders.com – Álfar, Tröll og Norðurljós
- Jón Ingi Myndlistamaður
- Kaffi Sól
- Kajakaferðir Stokkseyri
- Kvöldstjarnan gistiheimili
- Listaskálinn °Sjöfn Har°
- Rauða Húsið
- South.is
- Tjaldstæði Stokkseyrar
- Töfragarðurinn Stokkseyri
- Upplýsingamiðstöð Árborgar
- Veiðisafnið Stokkseyri
- Veitingastaðurinn Við Fjöruborðið
- Þuríðarbúð á Stokkseyri
09. September 2010Auglýsingar

Vísnahornið

Höfundur: Óþekktur

Þegar Hrútavinir hittast er stutt í vísur Í hátíðarkaffinu í gær í Lista- og menningaverstöðinni Hólmaröst eftir afmælistónleikana í Stokkseyrarkirkju vegna 120 ára afmælis kirkjunnar sátu nokkrir Hrútavinir til borð við meðlimi í Öldungaráðinu á Stokkseyri. Við slíka uppstillingu er oftast stutt í vísur sérstaklega ef á vettvangi eru Tómas Karlsson og Grétar Zóphaníasson en svo var einmitt í gær. Svo mælti Grétar Zóphaníasson í gær: “Þessar eru ættaðar af norðausturlandi, úr Skeggjastaðhreppi. Á ónafngreindum bæ í sveitinni bjuggu skelegg hjón og orðhvöss. Einhverju sinni þurfti kerling að vanda um fyrir karli sínum og sló þá fram þessari stöku.

Bændur svína brúka sið
belgja víni sinn í kvið
skynsemd tína og skerða frið
skæla trýnið út á hlið.


Ekki vildi karl láta málið á sig halla og svaraði snarlega.


Ketil velgja konurnar
kaffið svelgja forhertar
ófrið helga allstaðar
af því fjölga skuldirnar.


( höfundar óþekktir)”

Grétar Zóphaníasson.
Til baka
Mætir þú á Færeyska fjölskyldudaga á Stokkseyri???

Nei
það getur verið


[ Eldri kannanir ]

©Stokkseyri.is Sími 864-4222. Póstfang: stokkseyri@stokkseyri.is
Heimsóknir: 23767
Í dag: 1073