
| 06. September 2010 | Auglýsingar | |
|---|---|---|
|
Vísnahornið Höfundur: Sláturfélag Suðurlands / HólmaröstGuðmundur Valur Pétursson, sem nú býr að Útgörðum á Stokkseyri, var fyrsti Stokkseyringurinn sem falaðist eftir vinnu í Hólmaröst þegar það kom til að Hólmaröst flytti starfsemi frá Reykjavík til Stokkseyrar. Kom bón þessa eðlis fram nokkrum mánuðum áður en að Hólmaröst kom til Stokkseyrar. Guðmundur Valur hóf síðan störf hjá Hólmaröst síðla haustið 1999 nokkrum mánuðum eftir að Hólmaröst hóf starfsemi á Stokkseyri. Gat hann ekki byrjað strax þar sem hann var í lykilstarfi hjá Sláturfélagi Suðurlands. Hér neðar má sjá þau meðmæli sem bárust frá Sláturfélaginu um störf Guðmundar Vals. Guðmundur Valur Pétursson starfaði síðan í Hólmaröst um árabil og fékk þar sæmdarheitið “Hrútapabbi” vegna starfa þar og fyrir Hrútavinafélagið Örvar sem nú heitir “Hrútavinir group” vegna útrásar Hrútavina á síðustu misserum. Þegar Guðmundur Valur hélt til annara starfa við trésmíðar fékk hann einnig meðmæli eftir störf sín í Hólmaröst. Margar vísur eru til um störf og leiki Guðmundar Vals á síðustu árum og flestar fóru á launamiða í Hólmaröst en siður er þar að setja eina vísu í viku hverri á launaseðilinn. Frá Sláturfélaginu: |
|
| ©Stokkseyri.is Sími 864-4222. Póstfang: stokkseyri@stokkseyri.is Heimsóknir: 20339 Í dag: 664 |