Tengdir vefir

- Arabær Tamning-þjálfun-sala
- Árborg
- Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
- Draugasetrið
- Efni og greinar tengt BES
- Ella Rósinkrans - glerlist
- Fréttavefur sudurlandid.is
- Gistiheimili Suðurlands
- Gónhóll Eyrarbakka
- gtyrfingsson
- Hótel Gullfoss
- Húsið á Eyrarbakka og söfnin á suðurströndinni
- HUX Lista og tungumálamiðstöð
- Icelandicwonders.com – Álfar, Tröll og Norðurljós
- Jón Ingi Myndlistamaður
- Kaffi Sól
- Kajakaferðir Stokkseyri
- Kvöldstjarnan gistiheimili
- Listaskálinn °Sjöfn Har°
- Rauða Húsið
- South.is
- Tjaldstæði Stokkseyrar
- Töfragarðurinn Stokkseyri
- Upplýsingamiðstöð Árborgar
- Veiðisafnið Stokkseyri
- Veitingastaðurinn Við Fjöruborðið
- Þuríðarbúð á Stokkseyri
09. September 2010Auglýsingar

Vísnahornið

Höfundur: Sigurður Ingimundarson frá Strönd

Hér kemur eitt ljóðanna sem hin fræga "Syrpa" Stokkseyringafélagsins geymir og er það eftir Sigurð Ingimundarson frá Strönd á Stokkseyri, fæddur þann 4. desember 1918.

Friðsæla nótt

Sígur að húmið svo þögult og hljótt,
hjarta mitt þráir þig friðsæla nótt.
Dagur er liðinn, til dýrðar ég syng
þér drottinn, fyrir hvern sólfagran hring.

Alstirndur himinninn, heiður og tær
huga minn hrífa þá norðurljós skær.
Hlustandi á þögnina verður mér þó
þrautanna léttir er dagur mér bjó.

Vertu því velkomin friðsæla nótt
veittu mér hvíld, líka dirfsku og þrótt,
svo að til átaka efldur á ný
aftur mót deginum glaður ég sný.
Til baka
Mætir þú á Færeyska fjölskyldudaga á Stokkseyri???

Nei
það getur verið


[ Eldri kannanir ]

©Stokkseyri.is Sími 864-4222. Póstfang: stokkseyri@stokkseyri.is
Heimsóknir: 23794
Í dag: 1100