Tengdir vefir

- Arabær Tamning-þjálfun-sala
- Árborg
- Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
- Draugasetrið
- Efni og greinar tengt BES
- Ella Rósinkrans - glerlist
- Fréttavefur sudurlandid.is
- Gistiheimili Suðurlands
- Gónhóll Eyrarbakka
- gtyrfingsson
- Hótel Gullfoss
- Húsið á Eyrarbakka og söfnin á suðurströndinni
- HUX Lista og tungumálamiðstöð
- Icelandicwonders.com – Álfar, Tröll og Norðurljós
- Jón Ingi Myndlistamaður
- Kaffi Sól
- Kajakaferðir Stokkseyri
- Kvöldstjarnan gistiheimili
- Listaskálinn °Sjöfn Har°
- Rauða Húsið
- South.is
- Tjaldstæði Stokkseyrar
- Töfragarðurinn Stokkseyri
- Upplýsingamiðstöð Árborgar
- Veiðisafnið Stokkseyri
- Veitingastaðurinn Við Fjöruborðið
- Þuríðarbúð á Stokkseyri
09. September 2010Auglýsingar

Vísnahornið

Höfundur: Sigurður Þórarinsson og Hrútavinir.

Sigurður Sigurðarson, dýralæknir, er mjög ánægður með störf Hrútavina. Á fjölmennri samkomu í Þjórsárveri laugardagskvöldið 13. maí s.l. sem var "Söngkvöld á sauðburði" kynntu Hrútavinir Group samtökin og hið mikla og árangursríka starf sem rekja má til Hrútavina víða um lönd og strönd. Um þessa kynningu sáu forseti samsteypunnar og lífvörður sem ætíð er nærri þegar mikið liggur við. Á samkomunni í Þjórsárveri kvaddi sér hljóðs Sigurður Sigurðarson, dýralæknir, og lýsti mikilli ánægju með hið mikla og góða starf Hrútavina. Sagði Sigurður Sigurðarson síðan ágætar sögur af Hrútum og Mann-hrútum sem féllu í góðan jarðveg á samkomunni. Mikið var sungið á þessari samkomu eins og vera ber og m.a var sunginn reynslusöngur Hrútavina sem hér má sjá:

Hrútavina-sálmur

Ljóð: Sigurður Þórarinsson
og Hrútavinir.
Lag: Þórir Baldursson
( Það gerðist hér suður með sjó)

Það henti í himneskri ró,
að hrútur á Stokkseyri dó,
:,: og fóstrinn hans góði,
var ekki að slóri,
til útfararveislu sig bjó :,:

Það var logndrífa og
ládauður sjór
er hinn látni í gröfina fór,
:,: og félag með sjarmi,
lá þjakað af harmi,
menn sáu að hryggðin
var stór :,:

Bjarkar sagði:
“Holdið er hey,
vér hryggjumst
og kveinum ó vei!
:,: Þann gæðahrút tel ég,
sem guði nú fel ég.
Við geymum hans sögu ó lei”:,:

Þegar gengið frá garði var rótt,
kom Gummi og hvíslaði hljótt.
:,:” Nú saman við stöndum,
og samtaka höndum
skal hrúturinn keyptur
þá skjótt” :,:

Glaðnir víst var góður og nýr,
og gripurinn hann var sko dýr,
:,: en fjárhirðir góður,
með fjármuni óður,
hann fram rétti
peninginn hýr:,:


Draugur kom og drap
okkar hrút,
“Drottinn” allir hrukkum í kút,
:,: en tími mun koma,
ei tóm til að voma,
tárin okkar þerrum í klút :,:


Halda skulum hátíð á ný,
þó hrúturinn sé fyrir bý,
:,: því félagið dafnar,
og dauðanum hafnar,
og drekkum því saman á ný :,:

Hér hrútavinur aldar er,
hann titil með sóma nú ber.
:,: Sjá Steina með hrútinn,
sá kveður í kútinn,
helvítis draugaganginn hér:,:

Nú félagið fimm ára er
og framtíðin blasir við þér
:,: Af mönnum og sauðum
var reistur frá dauðum,
og ráðherra-lífið er hér:,:

******
Síðasta vísan er tileinkuð
“Heiðursforseta félagsins Guðna Ágústssyni”
og því að Hrútavinafélagið Örvar hafi bjargað honum af dauðalista Framsóknar;
þar sem fella átti hann sem varaformann flokksins
og skipta út úr ráðherrastóli.
Góð afmælisgjöf það á fimm ára afmæli félagsi 13. maí 2005.
Hrútavinir Group heitir félagið nú vegna útrásar samstæðunnar víða um heim.
Til baka
Mætir þú á Færeyska fjölskyldudaga á Stokkseyri???

Nei
það getur verið


[ Eldri kannanir ]

©Stokkseyri.is Sími 864-4222. Póstfang: stokkseyri@stokkseyri.is
Heimsóknir: 23745
Í dag: 1051