Tengdir vefir

- Arabær Tamning-þjálfun-sala
- Árborg
- Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
- Draugasetrið
- Efni og greinar tengt BES
- Ella Rósinkrans - glerlist
- Fréttavefur sudurlandid.is
- Gistiheimili Suðurlands
- Gónhóll Eyrarbakka
- gtyrfingsson
- Hótel Gullfoss
- Húsið á Eyrarbakka og söfnin á suðurströndinni
- HUX Lista og tungumálamiðstöð
- Icelandicwonders.com – Álfar, Tröll og Norðurljós
- Jón Ingi Myndlistamaður
- Kaffi Sól
- Kajakaferðir Stokkseyri
- Kvöldstjarnan gistiheimili
- Listaskálinn °Sjöfn Har°
- Rauða Húsið
- South.is
- Tjaldstæði Stokkseyrar
- Töfragarðurinn Stokkseyri
- Upplýsingamiðstöð Árborgar
- Veiðisafnið Stokkseyri
- Veitingastaðurinn Við Fjöruborðið
- Þuríðarbúð á Stokkseyri
09. September 2010Auglýsingar

Vísnahornið

Höfundur: Úr bókinni Saga daganna og gagnasafni Önfirðingafélagsins

Sumardagurinn fyrsti er á fimmtudegi, nú 19. til 25. apríl, en 9. til 15. apríl í gamla stíl fyrir 1700. Um fyrsta sumardag er getið þegar í elstu heimildum. Vikan var helsta tímeining í gamla íslenska tímatalinu, og kann það að valda nokkru um nafn fyrsta sumarmánaðar, hörpu, er ekki þekkt fyrr en frá 17. öld. Nafnið virðist dregið af vorhörkum, en síðar tengist það öðrum persónugerðum mánaðaheitum og er þá litið á Hörpu sem yngismey sem piltar eiga að fagna á fyrsta degi. Sumarblóta er lítillega getið í frásögnum af heiðnum sið. Þótt heimildir séu fámálar er líklegt að Íslendingar hafi alltaf haldið til í mat og drykk eftir efnum og ástæðum. Sumargjafir eru þekktar frá 16. öld og eru miklu eldri en jólagjafir. Ekki er unnið nema nauðsynjastörf eða táknræn sumarstörf, og hafa börn nýtt daginn til leikja. Víða var messað á sumardaginn fyrsta til miðrar 18. aldar en húslestrar héldust mun lengur. Samkomur hefjast í sveitum og bæjum seint á 19. öld. Eftir aldamót 1900 tengjast þær ungmennafélögum, en frá þriðja áratug þeirrar aldar hefur dagurinn verið helgaður börnum með skrúðgöngum, skemmtunum og útgáfustarfi. Fyrsti “barnadagurinn” var í Reykjavík árið 1921. Ýmis þjóðtrú tengist sumarkomu, og er meðal annars talið vita á gott sumar ef “frýs saman” aðfaranótt sumardagsins fyrsta. Þegar maður sá fyrsta tungl sumarsins átti hann að steinþegja þar til einhver ávarpaði hann. Úr ávarpinu mátti lesa véfrétt, og hétt þetta að láta ávarpa sig í “sumartunglið”. Fyrsti dagur hörpu, sumardagurinn fyrsti, er dagur strákanna, á meðan fyrsti dagur einmánaðar var dagur stúlknanna og reyndu strákarnir alltaf að vakna á undan stelpunum á sumardaginn fyrsta að sögn Hjálmars.

Heimildir: Úr bókinni Saga daganna eftir Árna Björnsson og gagnasafni Önfirðingafélagsins.

Þorri og Góa grálynd hjú
gátu son og dóttur eina:
Einmánuð sem bætti ei bú
og blíða Hörpu að sjá og reyna.

Að sögn Hjálmars Finnssonar frá Hvilft í Önundarfirði hófst sumardagurinn fyrsti hjá börnum þar með því að hlaupa þrjá hringi í kringum íbúðarhúsið og sungið lag sem hljóðaði svo:



“Verlkomin harpa,
gakktu inn í bæinn.
Vertu ekki í vindinum,
vorlangan daginn”.
Til baka
Mætir þú á Færeyska fjölskyldudaga á Stokkseyri???

Nei
það getur verið


[ Eldri kannanir ]

©Stokkseyri.is Sími 864-4222. Póstfang: stokkseyri@stokkseyri.is
Heimsóknir: 23767
Í dag: 1073