Tengdir vefir

- Arabær Tamning-þjálfun-sala
- Árborg
- Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
- Draugasetrið
- Efni og greinar tengt BES
- Ella Rósinkrans - glerlist
- Fréttavefur sudurlandid.is
- Gistiheimili Suðurlands
- Gónhóll Eyrarbakka
- gtyrfingsson
- Hótel Gullfoss
- Húsið á Eyrarbakka og söfnin á suðurströndinni
- HUX Lista og tungumálamiðstöð
- Icelandicwonders.com – Álfar, Tröll og Norðurljós
- Jón Ingi Myndlistamaður
- Kaffi Sól
- Kajakaferðir Stokkseyri
- Kvöldstjarnan gistiheimili
- Listaskálinn °Sjöfn Har°
- Rauða Húsið
- South.is
- Tjaldstæði Stokkseyrar
- Töfragarðurinn Stokkseyri
- Upplýsingamiðstöð Árborgar
- Veiðisafnið Stokkseyri
- Veitingastaðurinn Við Fjöruborðið
- Þuríðarbúð á Stokkseyri
09. September 2010Auglýsingar

Vísnahornið

Höfundur: Indriði Aðalsteinsson á Skjaldfönn

Það bar til um þessar mundir að Indriði Aðalsteinsson á Skjaldfönn við Ísafjarðardjúp fékk í haust lambhrút til blóðblöndunar á Bassastöðum. Þegar leið að jólum valdi bóndi hóp föngulegustu ánna saman í kró, en þegar hinn aðfengni kynbótagripur var leiddur í hús og sýndur hinn glæsilegi hópur kom babb í bátinn. Hrússi lét sem sér væru kynbótaáform bónda allsendis óviðkomandi og leit ekki við margfrægum afurðaám Skjaldfannarbúsins, heldur rölti bara um laus við allar holdsins fýsnir og langanir. Leið svo fram þar til Þorláksmessa var að kveldi komin að hrússi sýndi engin merki um þátttöku í kynbótaáætlun Indriða bónda. Þá kvað bóndi þessa vísu yfir hrútnum að skilnaði um leið og hann yfirgaf ærhús sitt vondaufur um framhaldið. En á aðfangadag jóla, þegar Indriði kom til fjárhúss, hafði brugðið til betri tíðar. Dorri hafði séð ljósið og skilið þá miklu ábyrgð sem á honum hvíldi og sinnti nú sínum embættisskyldum af miklum móð svo sem alvöru kynbótagrip hæfði.

Töltir um með tregasvip
tárum vætist klútur,
Að horfa á þennan góða grip
sem gagnast ei sem hrútur.
Til baka
Mætir þú á Færeyska fjölskyldudaga á Stokkseyri???

Nei
það getur verið


[ Eldri kannanir ]

©Stokkseyri.is Sími 864-4222. Póstfang: stokkseyri@stokkseyri.is
Heimsóknir: 23770
Í dag: 1076