Tengdir vefir

- Arabær Tamning-þjálfun-sala
- Árborg
- Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
- Draugasetrið
- Efni og greinar tengt BES
- Ella Rósinkrans - glerlist
- Fréttavefur sudurlandid.is
- Gistiheimili Suðurlands
- Gónhóll Eyrarbakka
- gtyrfingsson
- Hótel Gullfoss
- Húsið á Eyrarbakka og söfnin á suðurströndinni
- HUX Lista og tungumálamiðstöð
- Icelandicwonders.com – Álfar, Tröll og Norðurljós
- Jón Ingi Myndlistamaður
- Kaffi Sól
- Kajakaferðir Stokkseyri
- Kvöldstjarnan gistiheimili
- Listaskálinn °Sjöfn Har°
- Rauða Húsið
- South.is
- Tjaldstæði Stokkseyrar
- Töfragarðurinn Stokkseyri
- Upplýsingamiðstöð Árborgar
- Veiðisafnið Stokkseyri
- Veitingastaðurinn Við Fjöruborðið
- Þuríðarbúð á Stokkseyri
06. September 2010Auglýsingar

Vísnahornið

Höfundur: Hólmaröst

Starfsmenn Rafvarar hafa að mestu séð um rafmagnsvinnu í gegn um árin að Hafnargötu 9 á Stokkseyri sem nú gengur undir nafninu Lista- og menningarverstöðin Hólmaröst. Fljótlega við landnám lista og menningar að Hafnargötu 9 fengu Rafvararmenn það hlutverk að sjá um tölvu og ljósabúnað í vitalýsingu listaverksins “Brennið þið vitar” sem Elfar Guðni Þórðarson málaði í minningu og til heiðurs Páli Ísólfssyni tónskáldi á Stokkseyri. Tókst þetta samspil með þeim hætti að listaverkið “Brennið þið vitar” vekur mikla athygli og aðdáun þeirra fjölmörgu sem koma í Lista- og menningarverstöðina Hólmaröst á Stokkseyri og njóta hins magnaða samspils lags, ljóðs, lita og ljósa. Er verkið “Brennið þið vitar” nú þegar búið að skapa sér sess sem menningartákn svæðisins og m.a. notað í merki bryggjuhátíðarinnar. Þáttur Rafvararmanna í listaverkinu hefur ekki farið hátt fram að þessu vegna óska þeirra sjálfra en í tengslum við Bryggjuhátíðina á Stokkseyri um miðjan júlí s.l. voru þeir heiðraðir vegna þeirra góða þáttar í listaverkinu og tók Grétar Geir Halldórsson einn af starfsmönnum Rafvarar við viðurkenningunni. Grétar Geir Halldórsson hefur ætíð, þegar þurft hefur, komið á vettvang og lagfært vandamál sem snúa að rafmagni að Hafnargötu 9 fljótt og var þessi vísa ort í því tilefni.

Með toppgræjur til höfuðs og handa
og húmor að góðu tagi.
Fljótt hann kemur og finnur vanda
og fyrirtækið í góðu lagi.

Til baka
Mætir þú á Færeyska fjölskyldudaga á Stokkseyri???

Nei
það getur verið


[ Eldri kannanir ]

©Stokkseyri.is Sími 864-4222. Póstfang: stokkseyri@stokkseyri.is
Heimsóknir: 20338
Í dag: 663